20 Sep Topp 30 leiðir til að minnka plastnotkun
Posted at 11:27h
in fræðsla
Ef allt sem til fellur á heimlinu er flokkað í þaula má nánast komast hjá því að vera með „venjulegt rusl“. Það er jafnvel hægt að nota heimagerða pappa-poka úr gömlum dagblöðum í tunnuna. Á meðan verið er að komast á það stig má nota niðurbrjótanlega maíspoka sem lifa ekki í mörg hundruð ár eins og plastið.
En hér er okkar topp 30:
- Notaðu taupoka eða poka frá Pokastöðinni / Boomerang-poka í stað plastpoka!
- Hættu að drekka úr plastflöskum
- Notaðu þín eigin ílát undir skyndifæði
- Vertu með bolla úr ryðfríu stáli og glerrör alltaf með þér
- Kauptu ferskt brauð í bréfi eða engum umbúðum
- Skilaðu umbúðum undir tómata, ber o.s.frv. til verslunarinnar og framleiðenda
- Mættu með þínar eigin umbúðir fyrir tilbúna rétti hjá fisk- og kjötsalanum
- Skiptu plastfilmunni út fyrir bývaxdúka
- Kauptu vín með náttúrulega korktappa
- Slepptu frosna fæðinu
- Veldu plastfrjálst tyggjó
- Veldu beint úr stórum ílátum (bulk bins) eins oft og þú getur
- Segðu nei við plastumbúðarpokunum í kjörbúðinni
- Verslaðu beint af framleiðanda eða á ferska markaðinum
- Þvoðu heimilið með ediki eða vatni – slepptu plastbrúsakaupunum.
- Notaðu matarsóda fyrir erfiðari bletti, hann er frábært hreinsunarefni
- Notaðu uppþvottaduft án plastumbúða
- Þvoðu upp úr matarsóda eða stykkja-sápu
- Notaðu klúta úr náttúrulegum efnum en ekki gerviefnum.
- Þvoðu fötin úr heimagerðum hreinsiefnum
- Notaðu náttúrulega þvottahanska – t.d. 100% latex.
- Forðastu plastagnir í snyrtivörum, t.d. “polyethylene”
- Notaðu sápustykki ekki sápu í plasthylkjum
- Ekki nota sjampó í plastflöskum
- Notaðu matarsóda sem svitarlyktareyði
- Hættu að nota teflon og önnur “festist ekki við potta og pönnur” efni. Gerviefnin berast í matinn og náttúruna. Notaðu Ryðfrítt stál og pott (steypujárn).
- Kauptu glerblandara ekki plast.
- Notaðu gler og stál geymsluílát fyrir mat í kælinn.
- Notaðu tau- og málmnestisbox.
- Og síðast en ekki síst. Búðu til þitt eigið alls konar (konfekt, mæjones, tómatsósu, snakk o.s.frv.).
Sjá nánar á: