Hringrásarhagkerfi

Nýting hráefnum er keyrð áfram af neyslu og unnið er úr meira af hráefnum en plánetan ræður við.

Þess vegna er í auknum mæli að horft til Hringrásarhagkerfisins.

Hringrásarhagkerfið snýst um breyttar neysluvenjur en einnig framleiðsluaðferðir.

Núverandi hagkerfi byggir á línulegri nýtingu auðlinda, þ.e. hráefnisupptaka, vöruframleiðsla, sala og dreifing, notkun og urðun, sem sagt, vinna-nota-henda.

Hringrásarhagkerfið snýr að vörunotkun þar sem áhersla er lögð á að nota hreint, hættulaust og endurnýjanlegt hráefni og hver vara geti verið endurnýtt í nýja að notkun hennar lokinni, þannig heldur hringurinn áfram.

Með þessu móti er komið í veg fyrir að hættuleg efni berist í vistkerfi jarðar við vinnslu og urðun.

Að breyta úrgangi í auðlind er stórt lykillatriði í hringrásarhagkerfinu.

Hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins styðst við úrgangsþríhyrning Evrópusambandsins að því leyti að markvíst er unnið að því að koma okkur frá förgunarstiginu (urðun og brennsla án orkuheimts) sem telst til línulegrar úrgangsmeðhöndlun yfir í efri hluta þríhyrningsins þar sem áhersla er á að breyta úrgangi í auðlind með t.d. forvarnastarfsemi, lágmörkun úrgangs, endurnotkun og endurvinnslu.