Hvað er matarsóun!

Margir hugsa til munnbitanna sem enda í ruslinu eftir kvöldverðinn en vandamálið er talsvert stærra en það. Talið er að þriðjungi matvæla í heiminum sé hent. Á þetta við á öllum stigum matvælaiðnaðarins og á sér margar skýringar. En breytingarnar byrja hjá einstaklingunum og þurfum við því að lýta í eigin barm. Þegar við endurmetum neyslumynstur okkar og hefðir til að koma í veg fyrir matarsóun erum við draga úr umhverfismengun og sóun auk þess sem við spörum eigið fjármagn, sem annars færi í að fæða ruslið, og komum í veg fyrir hækkandi matvælaverð, sem stendur straum af kostnaðinum á ræktun matvæla sem endar í ruslinu.  

Matarsóun heimilanna er þegar við kaupum meiri mat en við þurfum, hendum afgöngum eða geymum matvæli ekki rétt. Með einföldu skipulagi og skrefum er hægt að minnka matarsóunina til muna 

  • Fylgstu með hvað er til á heimilinu og notaðu matinn áður en hann rennur út 
  • Greymdu matvæli rétt, ef þú ert ekki viss, leitaðu svara 
  • Endurnýjaðu afgangana, stundum er hægt að útbúa nýjan rétt úr gömlum, stráðu osti yfir réttinn og hitaðu í ofni eða búðu til kássu 
  • Notaðu nefið – dagsetning umbúðanna segja ekki alla söguna 
  • Deildu matnum, gefðu matvæli þangað sem þau nýtast 
  • Moltugerð! Ekki henda ónýtum mat í ruslið, endurnýttu hann og haldu hringrásinni lifandi 
  • Fylgstu með ruslinu þínu, góð hugmynd er að skrá niður þann mat sem þú fleygir og berðu saman við innkaupalistann þinn næst þegar þú ferð í búðina, ef til vill hvetur það þig til að endurhugsa matarinnkaupin að reikna út kostnað þess mats sem endar í ruslinu.