Við getum lagt okkar að mörkum til þess að spyrna við plastmengun í okkar umhverfi. Breytingarnar hefjast hjá okkur.
Hér finnur þú upplýsingar um hvernig sorphirðu er háttað í sveitarfélögunum á Suðurlandi.
Loftslagsbreytingar eru mikilvægasta viðfangsefni samtímans. Hér finnur þú hagnýtar upplýsingar um loftslagsmál og aðgerðir til að stemma stigu við vandanum.
Plast er ógn við lífkerfi heimsins. Við getum gert heilmikið til að minnka notkun plasts, ekki síst plastpoka. Til dæmis með stofnun pokastöðva um allt land.
Unga fólkið er svo sannarlega að vakna og farið að berjast gegn plastnotkun af fullum krafti.
Við kynnum ný og fróðleg hvatningarmyndbönd unga fólksins! Ert þú með ábendingu?
Láttu ekki skort á hugmyndum stoppa þig í að minnka plastnotkun. Margt smátt gerir eitt stórt. Það er ótrúlegt hvað er hægt að gera. Skoðaðu topp 30 listann okkar!
Við þurfum að hugsa algjörlega upp á nýtt hvernig við notum hluti ef ekki á að fara illa fyrir náttúrunni. Besta leiðin er að draga úr óendurvinnanlegum úrgangi sem við framleiðum og fókusa á hluti sem við getum endurnýtt og notað.
Að minnka notkun, sóun og auka endurvinnslu er frábært en við þurfum að gera svo miklu meira ef við eigum að vinna gegn gífurlegri notkun okkar á auðlindum. Við erum flest að taka miklu meira af náttúrunni en við gefum til baka. Það mun enda illa fyrr eða síðar.
Förum yfir nokkra punkta sem gætu hjálpað.
Að uppvinna er íslenska þýðingin á orðinu upcycle, einnig þekkt sem skapandi endurnýting (e. creative reuse). Þegar við uppvinnum þá búum við til eitthvað nýtt á skapandi hátt þannig að hlutirnir sem búnir eru til verða verðmeiri en hlutirnir sem fyrir eru – allavega í samanburði við það að framleiða og kaupa nýja.
Þú og þínir geta lagt sitt af mörkum til þess að hreinsa til í nærumhverfinu. Hjálpumst að við að gera Suðurlandið skínandi hreint.
Talið er að fatakaup innan Evrópu hafi aukist um 60% síðan árið 2000
Talið er að tískuiðnaðurinn beri ábyrgð á 10% losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum.
Hringrásarhagkerfið er breyting frá línulega kerfinu þar sem framleiðsluvörur eru grafnar í jörð og nýjar framleiddar.
Núverandi auðlindanotkun er ósjálfbær, því þarf að breyta öllum neysluhefðum og framleiðsluaðferðum.