Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10 þegar gert verður kaffihlé. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir m.a. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019, fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað.
Dagskráin heldur áfram meðal annars með hvetjandi sögum af fyrirtækjum kl. 10.15 og stendur til kl. 12.
Dagskrá og skráning á vef SA