Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Þema: matarsóun

Matarsóun er eitt alsherjar umhverfisvandamál. Í október ætlum við að fara í naflaskoðun og finna leiðir til að minnka sóun á mat. Meira um matarsóun í fréttaveitu okkar og á matarsóun.is

Fræðslufundur og diskósúpudagur í Flóahreppi

Mánudaginn 1. október nk. stendur atvinnu- og umhverfisnefnd Flóahrepps íbúum á Diskósúpufund um atvinnu- og umhverfismál. Fundurinn verður haldinn í Þingborg og hefst kl. 19:00 þar sem boðið verður upp á svokallaða Diskósúpu. Fundarefni: 1. Kynning á Reko hugmyndinni. Nýtt form á sölu og dreifingu...

Þema: notað og endurnýtt

Höldum nýtniviku og nytjamarkað á Suðurlandi. Gefum dótinu okkar annað líf. Fræðsla og viðburðir sem tengjast endurnýtingu og viðhaldi.

Tölt með tilgangi á Höfn

Umhverfissamtök Austur-Skaftafellsýslu hafa haldið, með þátttöku íbúa, mánaðarleg tölt, eða plokk, á Höfn í Hornafirði Umhverfissamtök Austur-Skaftafellssýslu

Flóamarkaður Höfn

Flóamarkaður  á Hafinu, Heppuvegi 5, laugardaginn 10. nóvember kl 12-15. Tilvalið tækifæri til að taka til í skápum, geymslum og bílskúrum fyrir jólin. Allir velkomnir að mæta og selja og kaupa allt milli himins og jarðar, notað og nýtt. Þátttaka er ókeypis og lofum við...

Hafnarhittingur – Höfn

Hafnarhittingur er opið hús þar sem fólk getur fræðst, sinnt áhugamálum sínum, kynnst nýju fólki og haft það notalegt. Markmiðið með Hafnarhitting er að styrkja fjölskylduna, styrkja félagsleg tengsl og styrkja bæinn okkar sem okkur þykir svo vænt um. Meðal viðburða að þessu sinni er umhverfisvæn...

Fataskiptimarkaður í Fjölheimum

Fjölheimar Tryggvagötu 13, Selfossi

Þann 15.nóvember nk ætlar starfsmannafélag Fjölheima að standa fyrir fataskiptimarkað í anddyri Fjölheima. Markaðurinn virkar þannig að hver sem er getur komið með föt sem hann er hættur að nota og lagt inn á markaðinn, og tekið í staðinn út eitthvað sem hentar/hugnast betur, allt...

Evrópsk Nýtnivika

Evrópska nýtnivikan er verkefni sem miðar að því að stuðla að aðgerðum til að vekja vitund um sjálfbærar auðlindir og úrgangsstjórnun. Það hvetur ólíka aðila svo sem stjórnvöld, einkafyrirtæki, sveitarfélög og borgarana sjálfa til að taka þátt. Evrópska nýtnivikan verður haldin 17.-25.nóvember en nánar má...

Vitundarvakning um fatasóun – Umhverfisdagur á Hallveigarstöðum

Kvenfélagasambandið býður þér að koma á Hallveigarstaði, Túngötu 14 og vera með á umhverfisdegi þar sem kvenfélagskonur munu aðstoða við viðgerðir og breytingar á fatnaði. Einnig verður fataskiptimarkaður,  flóamarkaður og fleira.

Alþjóðlegi klósettdagurinn

Alþjóðlegi klósettdagurinn er haldinn árlega þann 19.nóvember Deginum er ætla að vekja athygli á hreinlætisvanda sem margir búa við og afleiðingum þess. Á Íslandi, þar sem klósett er á hverju heimili hefur dagurinn m.a. verið notaður í að vekja athygli á hvað má og má...