Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Dagur skóga

21. March 2019

Dagur skóga er (e. the International Day of Forests (IDF)) er haldin árlega af Sameinuðu þjóðunum til að fagna og vekja athygli á fjölbreyttileika skóga og trjáa og mikilvægi þeirra.

Í ár (2019) er þemað Skógar og menntun (e. Forests and Education) til vitundarvakningar um mikilvægi sjálfbærar stjórnunar skóga.

Hafðu samband og taktu þátt í deginum #umhverfissudurland

 

Skógar eru fjölbreyttasta vistkerfi sem til er á landi og hýsa yfir 80% þeirra tegunda dýra, plantna og skordýra sem lifa á yfirborði jarðar. Þeir sjá einnig fólki sem býr í skógunum fyrir skjóli, störfum og öryggi.

Þá gegna skógar lykilhlutverki í baráttu mannkyns gegn loftslagsbreytingum með því að stuðla að jafnvægi súrefnis, koltvíoxíðs og raka í loftinu. Skógar verja einnig um 75% vatnsbóla í heiminum.

Þrátt fyrir alla þessa lífnauðsynlegu þjónustu sem skógar veita mönnum ganga þeir stöðugt meira á þá. Skóghögg nemur nú um 13 milljónum hektara árlega og orsakar 12 til 20 prósent af losun gróðurhúsalofttegunda sem stuðla að loftslagsbreytingum.

Á Íslandi nær ógróið eða illa gróið land á láglendi yfir um tólf prósent landsins, eða um 12.400 ferkílómetra. Skógrækt hefur hins vegar mikla möguleika á Íslandi enda er nær ótakmarkað land til skógræktar og lengi hægt að rækta skóg án þess að slíkt komi niður á annars konar landnotkun. Með skógrækt á melum og söndum víða um landið hefur verið sýnt fram á að nytjaskógrækt eða timburskógrækt er möguleg á gjörsnauðu landi. Með slíku starfi má endurheimta landgæði, draga úr jarðvegstapi, búa til skjól, öflug og sjálfbær vistkerfi og ekki síst umtalsverð verðmæti fyrir komandi kynslóðir.

(Fengið af vef Stjórnarráðsins)

Details

Date:
21. March 2019